Mikil tilhlökkun og virkilega gaman að fara byrja þetta
ÍR

Olís-deild kvenna hefst í dag með þremur leikjum. Upphafsleikur deildarinnar fer fram í N1-höllinni að Hlíðarenda þar sem Valur tekur á móti Selfossi klukkan 15:00.

Klukkan 16:00 mætast síðan ÍR og Stjarnan áður en Fram og Grótta mætast í lokaleik dagsins.

Davíð Georgsson nýráðinn þjálfari kvennaliðs ÍR var í viðtali á samfélagsmiðlum ÍR í vikunni og var spurður út í undirbúningstímabilið og fleira til.

,,Undirbúningstímabilið hefur gengið mjög vel. Við fórum norður og spiluðum tvo æfingaleiki þar og síðan höfum við spilað nokkra leiki til viðbótar og við erum að slípa okkur saman og þetta hefur gengið nokkuð vel."

,,Það er mikil tilhlökkun og virkilega gaman að fara byrja þetta. Við höfum æft vel og það eru allar klárar í slaginn og loksins er þetta að byrja.”

Davíð var að lokum beðinn um að koma með skilaboð til stuðningsmanna ÍR í lokin.

,,Það er Breiðholtshátíð á laugardaginn, ÍR - Leiknir fyrr um daginn og við beint í framhaldinu. Það væri gaman að sjá sem flesta mæta horfa á góðan handboltaleik.”

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top