Óðinn Þór Ríkharðsson og félagar hans í Kadetten Schaffhausen unnu GC Amicitia Zürich 34-28, í svissnesku úrvalsdeildinni í gær. Kadetten tók strax frumkvæðið og var með góð tök á leiknum í fyrri hálfleik. Gestirnir leiddu með sex mörkum í hálfleik 19-13 og höfðu því lagt grunninn að sigrinum fyrir hlé. Zürich reyndi að svara fyrir sig eftir hlé en Kadetten hélt forskotinu og náði að stýra leiknum til lykta. Lokatölur urðu 34-28 og þar með hefur Kadetten unnið alla þrjá leiki sína í upphafi tímabilsins. Óðinn Þór skoraði sjö mörk úr tíu skotum fyrir Kadetten en Birgir Már Birgisson skoraði fimm mörk úr sjö skotum fyrir Zurich og var markahæsti leikmaður liðsins í leiknum. Luka Maros var markahæstur í liði Kadetten með átta mörk Sigurinn kemur Kadetten í góða stöðu strax í upphafi tímabilsins og liðið hefur farið í gegnum fyrstu þrjá leikina án þess að tapa stigi. Birgir Már og félagar eru hinsvegar með fjögur stig að loknum þremur leikjum en þetta var fyrsta tap liðsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.