Opnunarleikurinn óvænt kominn til Eyja
Sævar Jónasson

Leikur ÍBV og KA/Þórs í 1. umferð Olís-deildar kvenna hefur verið færður fram og verður nú opnunarleikur deildarinnar á tímabilinu.

Leikurinn átti upphaflega að fara fram í Vestmannaeyjum á mánudaginn og vera síðasti leikur 1. umferðarinnar. Nú hefur honum hins vegar verið flýtt um tvo daga og verður flautað til leiks á morgun, laugardag, klukkan 13:00 í Vestmannaeyjum.

Þar með verða það ÍBV og KA/Þór sem ríða á vaðið í Olís-deild kvenna þetta tímabilið.

Fjórir leikir fara fram á laugardaginn. Eftir viðureign ÍBV og KA/Þórs mætast Valur og Selfoss klukkan 15:00, ÍR og Stjarnan klukkan 16:00 og Fram og Grótta klukkan 18:15.

Fyrstu umferðinni lýkur síðan á sunnudaginn þegar Haukar taka á móti HK á Ásvöllum klukkan 15:00.

Leikir 1. umferðar

Laugardagur 5. september

13:00 – ÍBV – KA/Þór (Vestmannaeyjar)
15:00 – Valur – Selfoss (N1-höllin)
16:00 – ÍR – Stjarnan (Skógarsel)
18:15 – Fram – Grótta (Lambhagahöllin)

Sunnudagur 6. september

15:00 – Haukar – HK (Kuehne+Nagel höllin)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top