Það verður sérstaklega áhugavert að fylgjast með framgöngu Brynjars Narfa Arndals með FH í vetur og sjá hvernig honum mun reiða af undir handleiðslu Arons Pálmarssonar. Konungurinn og erfðaprinsinn, ef leyfilegt er að grípa til slíkrar samlíkingar. Aron skipaði sér fyrir löngu á meðal bestu handknattleiksmanna Íslandssögunnar en Narfi er einn þeirra ungu leikmanna sem mestar væntingar eru bundnar við. Aron stýrir FH í fyrsta deildarleiknum í kvöld, gegn Stjörnunni í Kaplakrika, og með því hefst nýr kafli hjá félaginu. Fyrir Narfa verða umskiptin þó með sérstökum hætti. Þann tíma sem hann hefur verið viðloðandi meistaraflokk hefur hann leikið undir stjórn Sigursteins Arndals, föður síns, en nú tekur við nýr þjálfari, maður sem þekkir betur en flestir þá stöðu að vera ungur, gríðarlega efnilegur og þurfa snemma að bera þunga byrði væntinga. Breytingin er því ekki smávægileg. Narfi fer úr kunnuglegu umhverfi og verndarhjúpi föður síns yfir í handleiðslu manns sem sjálfur þekkir vel hvernig það er að vera ungur talinn afburðaefni og bera væntingar heillar handboltaþjóðar á herðum sér. Það er engum dulið að Narfi er í hópi efnilegustu handknattleiksmanna sinnar kynslóðar. Það er ekki aðeins leikskilningurinn og áræðnin sem vekja athygli, heldur einnig hæfileikinn til að taka frumkvæðið þegar þess er þörf. Þá býr hann yfir einstakri skottækni. Leiðsögn á réttum tíma Fáir íslenskir handknattleiksmenn þekkja betur þá leið sem Narfi á fyrir höndum en Aron. Þegar leikmaður býr yfir jafnmiklum hæfileikum og hann snýst næsta skref ekki aðeins um að verða sterkari, bæta ákvörðunartöku eða slípa einstaka þætti leiksins. Ekki síður reynir á að læra að stjórna leiknum, velja réttu augnablikin, lesa aðstæður fyrr og taka réttar ákvarðanir þegar hraðinn eykst og pressan verður meiri. Þar býr Aron yfir reynslu sem erfitt er að meta til fjár. Hann hefur sjálfur staðið í þeim sporum að vera ungur leikmaður sem miklar væntingar eru bundnar við og þurft að læra, skref fyrir skref, hvað þarf til að festa sig í sessi á allra hæsta stigi. Það er einmitt það sem gerir þessa sviðsmynd svo áhugaverða. Narfi þarf vitaskuld að móta sinn eigin leik og feta sína eigin slóð. Hann á ekki að verða næsti Aron Pálmarsson. En fáir, ef nokkrir, eru betur til þess fallnir að veita honum þá leiðsögn sem þarf á þessum tímapunkti ferilsins. Fyrsti deildarleikur FH undir stjórn Arons í kvöld markar því ekki aðeins upphaf nýs kafla hjá félaginu. Hann markar jafnframt upphaf tímabils þar sem sérstaklega áhugavert verður að sjá hvaða svip Aron setur á leik Narfa. Ekki ætla ég að fullyrða að Narfi verði í byrjunarliði FH í kvöld eða hversu margar mínútur hann fær. En þessi 16 ára piltur hefur fyrir löngu sýnt fram á hæfileika sem eru sjaldséðir hjá leikmönnum á þessum aldri og gæti Aron reynst lykilmaður í þeirri vegferð sem nú tekur við hjá honum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.