
Pólska handboltagoðsögnin Karol Bielecki er á leið aftur til Industria Kielce en í þetta skiptið verður það ekki inni á handboltavellinum. Bielecki verður nýr forseti félagsins samkvæmt pólskum fjölmiðlum. Eigandi félagsins, Świętokrzyska Grupa Przemysłowa Industria, leitaði til Bielecki á undanförnum vikum og eftir nokkra fundi samþykkti hann að taka við starfinu. Miklar breytingar hafa átt sér stað í stjórnendateymi Kielce að undanförnu. Michał Jurecki er hættur sem íþróttastjóri og Konrad Czajkowski hefur einnig yfirgefið stjórn félagsins. Paweł Papaj, sem hefur gegnt starfi forseta, verður áfram í stjórn og er gert ráð fyrir að hann verði varaforseti. Bielecki þarf vart að kynna fyrir stuðningsmönnum Kielce. Hann lék með félaginu á árunum 1999–2004 og aftur frá 2012 þar til hann lagði skóna á hilluna árið 2018. Hann varð meðal annars sjöfaldur pólskur meistari með félaginu og var hluti af liðinu sem vann Meistaradeild Evrópu árið 2016. Bielecki lék einnig 255 landsleiki fyrir Pólland og skoraði í þeim 955 mörk. Hann vann silfur á HM 2007 og brons á HM 2009 og 2015.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.