Sigvaldi Björn Guðjónsson, landsliðsmaður í handbolta, hefur ekkert komið við sögu með Hannover-Burgdorf í upphafi tímabilsins vegna meiðsla í baki en er nú á batavegi og ætlar að auka álagið á æfingum liðsins. Sigvaldi gekk í raðir Hannover-Burgdorf frá norska stórliðinu Kolstad í sumar og samdi við þýska félagið til þriggja ára. Hann hefur hins vegar þurft að bíða eftir fyrsta mótsleiknum með nýja liðinu vegna bakmeiðsla sem hafa hrjáð hann undanfarið. Sigvaldi segir í samtali við Handkastið að vandamálið tengist taugum í bakinu og hafi meðal annars haft töluverð áhrif á vinstri fótlegginn. „Ég er búinn að vera með eitthvað vesen í bakinu, eitthvað tengt taugunum. Ég missti mikinn kraft í vinstri löpp en er að verða klár,“ sagði Sigvaldi við Handkastið. Batinn hefur gengið vel að undanförnu og Sigvaldi tekur nú næsta skref í endurhæfingunni. „Ég byrja að taka meira og meira þátt í æfingum liðsins í þessari viku,“ bætti hann við. Sigvaldi kom til Hannover-Burgdorf eftir fjögurra ára dvöl hjá Kolstad, þar sem hann var meðal lykilmanna liðsins og fyrirliði um tíma. Hann var fenginn til Hannover í sumar til að styrkja hægra horn liðsins eftir brotthvarf Marius Steinhauser. Það styttist því vonandi í fyrsta mótsleik Sigvalda í treyju Hannover-Burgdorf.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.