Adam og Elmar öflugir í tveimur sigrum
Sævar Jónasson

Adam Thorstensen og Elmar Erlingsson fögnuðu báðir sigri með liðum sínum í þýsku 2. deildinni í gær.

Adam átti góðan leik í marki Lübeck-Schwartau sem vann öruggan ellefu marka sigur á Bayer Dormagen, 42–31. Staðan í hálfleik var 21–19 en heimamenn stungu af eftir hlé.

Adam varði ellefu skot á þeim 45 mínútum sem hann lék og var með um 34 prósenta markvörslu. Þetta var annar stórsigur Lübeck-Schwartau í jafnmörgum leikjum og liðið er á toppi deildarinnar með fjögur stig og markatöluna 76–54.

Elmar var síðan markahæstur hjá Nordhorn-Lingen með sex mörk í 28–20 sigri á Hamm-Westfalen. Jafnt var í hálfleik, 12–12, en Nordhorn-Lingen tók öll völd í síðari hálfleik. Elmar skoraði fimm af mörkum sínum í seinni hálfleik og fjögur þeirra á tæplega sjö mínútna kafla þegar heimamenn gerðu út um leikinn.

Nordhorn-Lingen hefur einnig unnið báða leiki sína en liðið byrjaði með mínus stig í upphafi tímabils sem verða dregin af þeim í lok tímabils.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top