
Janus Daði Smárason og Viktor Gísli Hallgrímsson urðu í gær meistarar með Barcelona í SuperCopa Ibérica eftir 39-34 sigur á Sporting CP í úrslitaleiknum í Vigo. Orri Freyr Þorkelsson varð því að sætta sig við silfrið með Sporting á meðan Þorsteinn Leó Gunnarsson og félagar í Porto höfnuðu í þriðja sæti. Barcelona hefur haft algjöra yfirburði í keppninni frá því hún var sett á laggirnar. Katalóníuliðið hefur nú unnið öll fimm mótin sem haldin hafa verið. Úrslitaleikurinn var jafn lengi vel. Barcelona var aðeins einu marki yfir í hálfleik, 19-18, en náði betri tökum á leiknum eftir hlé. Staðan var 23-20 eftir 36 mínútur og skömmu síðar 28-24. Sporting náði að minnka muninn niður í þrjú mörk undir lokin en Barcelona svaraði og vann að lokum 39-34. Viktor Gísli byrjaði leikinn í marki Barcelona en hinn ungi Albert Quesada fékk einnig talsvert hlutverk á milli stanganna. Janus Daði kom inn af bekknum hjá Barcelona. Orri Freyr var hins vegar í byrjunarliði Sporting og varð þar með silfurverðlaunahafi á mótinu. Sporting hafði tryggt sér sæti í úrslitaleiknum með 31-29 sigri á Bidasoa Irun í undanúrslitum. Fyrr um daginn vann Porto öruggan 32-25 sigur á Bidasoa Irun í leiknum um 3. sætið. Jafnræði var með liðunum framan af og staðan 8-7 fyrir Porto eftir stundarfjórðung. Portúgalska liðið tók hins vegar völdin þegar leið á fyrri hálfleikinn og var komið í 19-14 í hálfleik. Porto hélt áfram að auka forskotið eftir hlé og staðan var 26-18 eftir 45 mínútur. Þorsteinn Leó Gunnarsson var í leikmannahópi Porto en komst ekki á blað. Vasco Costa var markahæstur Porto með fimm mörk. Þorsteinn Leó hafði hins vegar látið mun meira að sér kveða í undanúrslitaleiknum gegn Barcelona í gær. Porto var sjö mörkum undir í hálfleik en Þorsteinn Leó var sérstaklega áberandi þegar portúgalska liðið vann sig aftur inn í leikinn í síðari hálfleik. Porto minnkaði muninn niður í 24-21 og síðar 38-36 áður en Barcelona vann 39-37. 
Þorsteinn Leó og Porto tóku bronsið

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.