Füchse kláraði kaupin á franska landsliðsmanninum
Julien Kammerer / DPPI via AFP

Füchse Berlin hefur gengið frá kaupum á franska landsliðsmanninum Aymeric Zaepfel frá PAUC. Zaepfel skrifar undir samning út yfirstandandi tímabil og var strax í leikmannahópi Füchse gegn Stuttgart í þýsku Bundesligunni í gær.

Füchse staðfesti félagaskiptin í gærmorgun en Handkastið greindi frá því á föstudaginn að Berlínarliðið væri að vinna að því að fá hinn 24 ára gamla Zaepfel til félagsins.

Zaepfel lenti í Berlín á föstudagskvöld og hlutirnir gengu hratt fyrir sig eftir það. Hann fær treyju númer 30 hjá Füchse og var kominn á bekkinn þegar liðið mætti Stuttgart aðeins tveimur dögum síðar. Hann kom þó ekki við sögu í leiknum.

Füchse vann dramatískan 34-33 sigur þar sem Mathias Gidsel var markahæstur Berlínarliðsins með tíu mörk. Lasse Ludwig varði síðan skot Stuttgart á lokasekúndunum og tryggði Füchse bæði stigin.

Hann lék með franska landsliðinu á Evrópumótinu fyrr á árinu eftir að hafa verið kallaður inn í hópinn vegna meiðsla Nedim Remili og skoraði níu mörk á mótinu.

Füchse hefur verið á höttunum eftir liðsauka í vinstri skyttustöðuna eftir brotthvarf Lasse Andersson. Matthes Langhoff hefur borið mikla ábyrgð þar í upphafi tímabilsins en Zaepfel á að auka breiddina, ekki síst nú þegar Meistaradeildin fer af stað.

„Við höfum fengið leikmann með mikinn handboltagreind og vonum að hann geti fljótlega hjálpað okkur beggja vegna vallarins,“ sagði Nicolej Krickau, þjálfari og íþróttastjóri Füchse, um nýja liðsmanninn.

Næsta tækifæri Zaepfel til að spila sinn fyrsta leik fyrir Füchse kemur í Meistaradeildinni þegar Berlínarliðið mætir Partizan á útivelli á miðvikudaginn.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top