Þjóðmálakóngurinn fær fyrstu heimsókn vetrarins frá Skolphreinsun Ásgeirs
Kristinn Steinn Traustason

Það vakti athygli að Lena Margrét Valdimarsdóttir var ekki í leikmannahópi Fram þegar liðið hóf tímabilið á sigri gegn Gróttu í 1. umferð Olís-deildar kvenna um helgina.

Lena Margrét sneri aftur í raðir Fram í sumar eftir dvöl í atvinnumennsku í Svíþjóð en samkvæmt Stymma klippara í nýjasta þætti Handkastsins var ástæðan fyrir fjarveru hennar sú að leikheimild hennar var ekki komin í gegn fyrir fyrsta leik tímabilsins.

„Hún kom heim í sumar frá Svíþjóð og ég fór að grennslast aðeins fyrir um þetta mál. Þá kom í ljós að hún er ekki komin með leikheimild,“ sagði Stymmi klippari.

Málið fór töluvert fyrir brjóstið á Sérfræðingnum sem beindi spjótum sínum að Gísla Frey Valdórssyni, formanni handknattleiksdeildar Fram.

„Við þurfum að senda Skolphreinsun Ásgeirs á Gísla í Þjóðmálum. Formaður handknattleiksdeildar Fram ber ábyrgð á þessu,“ sagði Sérfræðingurinn.

Lena Margrét var þó ekki eini leikmaðurinn í Olís-deildum karla og kvenna sem gat ekki tekið þátt í fyrstu umferðinni vegna sambærilegrar stöðu. Elísa Helga Sigurðardóttir, markvörður ÍR, var ekki í leikmannahópi liðsins gegn Stjörnunni og Haraldur Björn Hjörleifsson var sömuleiðis fjarri góðu gamni þegar Afturelding mætti Víkingi.

„Ég heyrði aðeins í Haraldi Þorvarðarsyni, þjálfara Fram, og hann viðurkenndi að honum hafi ekki verið skemmt þegar hann fékk þessar fréttir á föstudaginn,“ sagði Sérfræðingurinn.

„Það er nokkuð ljóst að Gísli Freyr Valdórsson fær fyrstu heimsókn vetrarins frá Skolphreinsun Ásgeirs. Það að fá til sín leikmann úr atvinnumennsku og vera ekki með hana klára í fyrsta leik.“

„Getið þið ímyndað ykkur, strákar, að þetta sé jafn leikur og Grótta sé í jöfnum leik um miðbik seinni hálfleiks? Ef Fram hefði misstígið sig í þessum leik þá hefði verið hægt að berja í veggi og benda á þetta,“ bætti Sérfræðingurinn við. Fram tókst þó að landa sigri án Lenu Margrétar og hóf því tímabilið á tveimur stigum.

Fram fer í heimsókn í Garðabæinn næstkomandi föstudag og mætir þar Stjörnunni. Gera má ráð fyrir því að Lena Margrét verði með í þeim leik. Frekari umræðu um fyrstu umferð Olís-deildar kvenna má nálgast í nýjasta þætti Handkastsins á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top