Nýliðar Gróttu voru án tveggja lykilleikmanna þegar liðið hóf leik í Olís-deild kvenna með 30-24 tapi gegn Fram í Lambhagahöllinni á laugardaginn. Katrín Helga Sigurbergsdóttir, fyrirliði liðsins, og Ída Margrét Stefánsdóttir voru báðar fjarri góðu gamni. Grótta hélt vel í Fram lengi vel í fyrsta leik sínum eftir endurkomuna í Olís-deildina. Fram leiddi 13-11 í hálfleik en Grótta jafnaði metin í 16-16 í síðari hálfleik áður en heimakonur tóku völdin og unnu að lokum sex marka sigur, 30-24. Tvö stór skörð voru þó höggvin í lið nýliðanna. Fyrirliðinn Katrín Helga var ekki með og þá vantaði einnig Ídu Margréti, sem var markahæsti leikmaður Gróttu í Grill 66-deildinni á síðustu leiktíð. Fjarvera þeirra virðist þó ekki ætla að verða langvarandi. „Katrín Helga og Ída eru báðar frá en við búumst við þeim í næstu leikjum. Þetta er ekkert alvarlegt en við tökum enga sénsa í byrjun móts,“ sagði Júlíus Þórir Stefánsson, þjálfari Gróttu, í samtali við Handkastið. Júlíus Þórir var sjálfur ekki á hliðarlínunni gegn Fram þar sem hann tók út leikbann og því voru nýliðarnir án þjálfarans auk tveggja lykilleikmanna í fyrsta leik tímabilsins. Grótta heimsækir Selfoss í annarri umferð Olís-deildarinnar á föstudaginn. Í kjölfarið tekur liðið á móti Stjörnunni í þriðju umferð áður en komið verður að fyrstu landsleikjapásu tímabilsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.