Einn leikur var á dagskrá í kvöld er 3.umferð þýsku úrvalsdeildarinnar lauk og var það Wetzlar sem tók á móti Eisenach. Wetzlar byrjaði leikinn betur og komst snemma yfir, en Eisenach hélt vel í við heimamenn og var leikurinn jafn á flestum köflum fyrri hálfleiks. Staðan var meðal annars 6–6 eftir 13 mínútur og 11–11 þegar um sjö mínútur voru eftir af fyrri hálfleik. Wetzlar náði þá góðum kafla undir lok hálfleiksins og fór með þriggja marka forskot inn í hálfleikinn, 15–12. Wetzlar byrjaði seinni hálfleikinn vel og komst í 16–13. Eisenach gafst þó ekki upp og jafnaði í 17–17. Eftir það skiptust liðin á að hafa frumkvæðið og leikurinn varð mjög jafn. Lokamínúturnar voru mjög spennandi. Eisenach komst í 29–27 þegar rúmar fimm mínútur voru eftir, en Wetzlar svaraði með tveimur mörkum og jafnaði í 29–29. Eisenach komst aftur yfir, 30–29, en Wetzlar sneri stöðunni sér í vil og komst í 31–30 þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir. Dominik Solak skoraði síðan jöfnunarmark Eisenach þegar rúmar tvær mínútur voru eftir. Fleiri mörk voru ekki skoruð og því lauk hörkuspennandi leik með 31–31 jafntefli. Atkvæðamesti leikmaður vallarins var Felix Aellen með 9 mörk. Úrslit dagsins: Wetzlar-Eisenach 31-31

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.