Íslenska karlalandsliðið mætir Kuwait í tveimur vináttulandsleikjum í Laugardalshöll í janúar. Leikirnir verða síðustu undirbúningsleikir Íslands á heimavelli fyrir heimsmeistaramótið 2027. Leikirnir fara fram 7. og 9. janúar 2027 en Handknattleikssamband Íslands hefur gengið frá samkomulagi við Handknattleikssamband Kuwait um komu liðsins hingað til lands. Aron Kristjánsson stýrir landsliði Kuwait. Aron þekkir íslenska landsliðið betur en flestir enda stýrði hann liðinu á árunum 2012 til 2016. Kuwait hefur verið á meðal sterkari landsliða Asíu undanfarin ár og vann meðal annars til bronsverðlauna á síðustu Asíuleikum. Upphaflega stóð til að Egyptaland kæmi hingað til lands í janúar. Gert hafði verið ráð fyrir gagnkvæmu fyrirkomulagi og fór Ísland til Egyptalands í maí og lék þar vináttulandsleiki. Þegar ljóst varð að Egyptar kæmu ekki til Íslands var leitað að nýjum mótherja og varð Kuwait fyrir valinu. „Við erum mjög ánægð með að hafa náð samkomulagi við Kuwait um þessa leiki. Þetta verður góður prófsteinn fyrir okkur í aðdraganda HM og jafnframt frábært tækifæri fyrir stuðningsfólk íslenska landsliðsins að sjá strákana okkar í Laugardalshöll í síðustu undirbúningsleikjum fyrir mótið,“ segir Sólveig Jónsdóttir, framkvæmdastjóri HSÍ. Leiktímar og upplýsingar um miðasölu verða kynnt síðar segir í tilkynningunni frá HSÍ.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.