Einn leikur fór fram í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld þegar Íslendingalið TTH Holstebro tók á móti Sønderjyske. Leikurinn var sá síðasti í fjórðu umferðinni en Holstebro gat komið sér í fimmta sætið með sigri. Það gekk því miður ekki eftir og þeir töpuðu óvænt með þremur mörkum eftir að hafa verið sex mörkum undir í hálfleik. Jóhannes Berg Andrason skoraði þrjú mörk úr fimm skotum en eftir leikinn eru Holstebro í níunda sætinu á meðan Sønderjyske fór upp fyrir Holstebro og sitja í áttunda sætinu. GOG og Ribe-Esbjerg deila efsta sætinu með sjö stig hvor og eru einu taplausu liðin eftir fjórar umferðir.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.