
Íris Björk Símonardóttir hefur verið ráðin markmannsþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Gróttu. Hún mun einnig koma að markmannsþjálfun yngri flokka félagsins. Íris Björk er öllum hnútum kunnug hjá Gróttu en hún á að baki 244 leiki fyrir meistaraflokk félagsins. Hún varð tvívegis Íslandsmeistari með Gróttu auk þess að vinna bæði deildar- og bikarmeistaratitil með félaginu. Hún á jafnframt farsælan feril að baki með Fram og Val þar sem hún vann einnig til fjölda titla. Íris Björk mun sinna markvörðum meistaraflokks kvenna í vetur en þeir eru Andrea Gunnlaugsdóttir, Anna Karólína Ingadóttir og Soffía Helen Sölvadóttir. Auk starfsins með meistaraflokknum mun Íris Björk koma inn á æfingar hjá 3. og 4. flokki kvenna og vinna með markvörðum liðanna. Hallgrímur Jónasson hefur áður verið kynntur sem markmannsþjálfari meistaraflokks karla hjá Gróttu. Hann heldur jafnframt utan um sameiginlegar markmannsæfingar 3. og 4. flokks karla og kvenna og sinnir markvörðum drengjaflokkanna, á meðan Íris Björk sér um markverði stúlkna á sama aldri.
Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.
