Ómar markahæstur í stórsigri Magdeburg og önnur úrslit opnunarkvöldsins í Meistardeildinni
Frank Hoermann

Fyrsta umferð Meistaradeildar Evrópu karla hófst í kvöld með sjö leikjum. Nokkrir íslenskir landsliðsmenn voru í eldlínunni og íslenska tríóið hjá SC Magdeburg skoraði samtals 15 mörk í stórsigri á Kolstad.

SC Magdeburg 37-22 Kolstad (19-12)

Elvar Örn Jónsson, Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Inga Magnússon hófu Meistaradeildina með látum þegar lið þeirra vann 15 marka stórsigur á norska liðinu Kolstad, 37-22.

Leikurinn var jafn framan af og Kolstad minnkaði muninn í 7-6 þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður. Magdeburg tók hins vegar öll völd á lokakafla fyrri hálfleiks og var með sjö marka forskot í hálfleik, 19-12.

Yfirburðir þýsku meistaranna urðu enn meiri eftir hlé. Magdeburg komst tíu mörkum yfir, 24-14, þegar tæpar 20 mínútur voru eftir og eftir það var aldrei spurning hvorum megin sigurinn myndi lenda. Lokatölur urðu 37-22.

Ómar Ingi Magnússon var markahæstur hjá Magdeburg með sjö mörk. Elvar Örn Jónsson og Gísli Þorgeir Kristjánsson skoruðu fjögur mörk hvor.

Barcelona 39-28 SAH Aarhus (18-13)

Evrópumeistarar Barcelona hófu titilvörn sína með öruggum ellefu marka sigri á SAH Aarhus, 39-28.

Danirnir héldu vel í Barcelona framan af en heimamenn náðu smám saman undirtökunum. Barcelona var fimm mörkum yfir í hálfleik, 18-13, og jók forskotið jafnt og þétt eftir hlé.

Dika Mem var markahæstur Barcelona með sjö mörk. Janus Daði Smárason lék sinn fyrsta leik fyrir Barcelona í Meistaradeildinni og skoraði eitt mark.

Viktor Gísli Hallgrímsson fékk sjö mínútur í marki Barcelona. Hann varði eitt af þeim fimm skotum sem hann fékk á sig.

Nantes 26-25 Wisla Plock (11-11)

Mikil spenna var í Frakklandi þar sem Nantes hafði betur gegn pólsku meisturunum í Wisla Plock með minnsta mun, 26-25.

Liðin voru jöfn, 11-11, í hálfleik og lítið skildi þau að allan síðari hálfleikinn. Nantes reyndist sterkara á lokasprettinum og tryggði sér bæði stigin.

Ian Tarrafeta var markahæstur Nantes með níu mörk en Dawid Dawydzik skoraði sjö fyrir Plock.

Aalborg 33-33 PSG (16-18)

Aalborg og Paris Saint-Germain skildu jöfn, 33-33, eftir mikla dramatík í Danmörku.

PSG var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 18-16, en Aalborg sneri leiknum sér í hag eftir hlé. Danirnir leiddu 33-31 þegar rúm mínúta var eftir en PSG náði að jafna áður en leiktíminn rann út.

Ferran Solé var markahæstur PSG með tíu mörk úr tíu skotum. Juri Knorr og Mads Hoxer skoruðu sjö mörk hvor fyrir Aalborg.

Bjarki Már Elísson skoraði fjögur mörk úr fjórum skotum fyrir PSG.

Veszprém 36-28 Porto (15-14)

Porto hélt vel í ungverska stórliðið Veszprém í fyrri hálfleik og var aðeins einu marki undir þegar gengið var til búningsherbergja, 15-14.

Veszprém kom hins vegar af miklum krafti inn í síðari hálfleikinn og skoraði fyrstu fimm mörkin. Þar með var grunnurinn lagður að átta marka sigri, 36-28.

Þorsteinn Leó Gunnarsson komst ekki á blað í kvöld.

Zagreb 31-29 Celje (14-12)

Zagreb hóf keppnina á tveimur stigum eftir 31-29 sigur á Celje.

Heimamenn voru tveimur mörkum yfir í hálfleik en Celje gafst ekki upp og jafnaði í 17-17 eftir hlé. Zagreb náði aftur undirtökunum og hélt út á lokakaflanum.

Ihar Bialiauski var markahæstur Zagreb með níu mörk en hinn 17 ára gamli Aljuš Anžič fór á kostum fyrir Celje og skoraði ellefu.

Kielce 30-29 Kriens-Luzern (19-15)

Industria Kielce þurfti að hafa mikið fyrir 30-29 sigri á Kriens-Luzern.

Pólverjarnir voru fjórum mörkum yfir í hálfleik, 19-15, en svissneska liðið kom til baka og gerði lokamínúturnar æsispennandi. Kielce hélt þó út og tryggði sér eins marks sigur.

Aleks Vlah var markahæstur Kielce með átta mörk en Marin Sipic skoraði átta fyrir Kriens-Luzern.

Úrslit kvöldsins:

Aalborg Håndbold – Paris Saint-Germain 33-33
Industria Kielce – Kriens-Luzern 30-29
ONE Veszprém – FC Porto 36-28
HC Zagreb – RK Celje 31-29
HBC Nantes – Wisla Plock 26-25
Barcelona – SAH Aarhus 39-28
SC Magdeburg – Kolstad 37-22

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top