
Samkvæmt heimildum Handkastsins hefur ÍBV samið við sænska markvörðinn Corneliu Hermansson. Hún er íslenskum handboltaáhugamönnum að góðu kunn enda lék hún með Selfossi í þrjú ár. Cornelia, sem er 26 ára, kom til Selfoss frá sænska liðinu Kärra sumarið 2022 og lék með liðinu til vorsins 2025. Hún féll með Selfyssingum úr Olís-deildinni á sínu fyrsta tímabili en átti þátt í því að liðið vann Grill 66-deildina með yfirburðum veturinn eftir og tryggði sér sæti á ný meðal þeirra bestu. Selfoss hafnaði síðan í fjórða sæti Olís-deildarinnar tímabilið 2024–2025 og komst í úrslitakeppnina. Þar féll liðið úr leik gegn Haukum í átta liða úrslitum. Cornelia hafði framlengt samning sinn við Selfoss til ársins 2026 en ákvað þess í stað að snúa aftur til Svíþjóðar sumarið 2025. Hún gekk þá til liðs við Kungälv og sneri þar með aftur í sænsku úrvalsdeildina. Meiðsli settu hins vegar strik í reikninginn á síðustu leiktíð og héldu henni frá keppni mánuðum saman. Áður en Cornelia hélt til Íslands hafði hún meðal annars verið hjá Önnered í sænsku úrvalsdeildinni tímabilið 2018–2019 og síðar leikið með Kärra. Hún hefur því reynslu úr efstu deildum bæði Íslands og Svíþjóðar. Með komu Corneliu fær ÍBV markvörð sem þekkir vel til íslenska boltans eftir veruna á Selfossi. Hún þekkir sömuleiðis vel til lífsins hér á landi en kærasti hennar er Jón Þórarinn Þorsteinsson, markvörður FH. Þau léku bæði með Selfossi á sínum tíma. Cornelia er ætlað að fylla skarð Amalie Frøland sem sleit krossband í undanúrslita einvígi ÍBV og Hauka um Íslandsmeistaratitilinn á síðustu leiktíð og getur ekki leikið með liðinu á þessu tímabili. ÍBV hóf tímabilið á sigri gegn KA/Þór í 1.umferð Olís-deildarinnar en liðið heimsækir þrefalda meistara Vals heim á sunnudaginn klukkan 18:00 í stórleik 2.umferðar Olís-deildar kvenna.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.