Finnst við vera of soft varnarlega
J.L.Long

Aron Pálmarsson þjálfari FH var að vonum svekktur með niðurstöðuna í Mosfellsbænum í gær eftir að liðið gerði 33-33 jafntefli í hörkuleik gegn Aftureldingu í 2.umferð Olís-deildar karla.

FH var 16-14 yfir í hálfleik og náði mest fimm marka forystu í seinni hálfleik. Það dugði þó ekki til því Mosfellingar voru sterkari aðilinn undir lok leiks og jafntefli staðreynd.

MOSFELLINGAR KOMU TIL BAKA OG TRYGGÐU SÉR STIG GEGN FH

,,Fyrstu viðbrögð þá er þetta svipað og í fyrsta leiknum. Við erum of soft varnarlega. Þar af leiðandi datt markvarslan niður í seinni hálfleik. Síðan fannst mér við ekki finna nægilega góðar lausnir sóknarlega þó að það hafi kannski ekki verið megin vesenið. Mér finnst við vera aðeins of soft varnarlega," sagði Aron Pálmarsson þjálfari FH í samtali við Handkastið eftir leik.

,,Það er erfitt að finna eitthvað jákvætt núna eftir að hafa misst þennan leik niður. Það er pottþétt fullt jákvætt en fyrsta sem kemur upp er sóknarleikurinn heilt yfir. Ég var pínu pirraður í hálfleik að vera ekki meira yfir. Mér fannst við vera að koma okkur í góð færi en við töpuðum of mörgum boltum síðasta korterið í fyrri hálfleik en svona gerist gegn liðum eins og Aftureldingu."

En hvað vill hann sjá betur í næsta leik sem verður gegn Víking á miðvikudaginn í næstu viku.

,,Við þurfum að vera betri varnarlega.”

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top