Afturelding og FH skildu jöfn, 33-33, í hörkuleik í 2. umferð Olís-deildar karla í Mosfellsbæ í kvöld. Hákon Daði Styrmisson átti stórleik fyrir heimamenn og skoraði tíu mörk úr jafnmörgum skotum. FH-ingar höfðu frumkvæðið lengst af í fyrri hálfleik. Gestirnir náðu fjögurra marka forskoti, 7-11, eftir rúmlega stundarfjórðung en Afturelding vann sig aftur inn í leikinn fyrir hlé. Staðan í hálfleik var 14-16 fyrir FH. Gestirnir byrjuðu síðari hálfleikinn af krafti og komust fimm mörkum yfir, 14-19. Afturelding neitaði hins vegar að gefast upp og saxaði jafnt og þétt á forskotið. Þegar rúmar fimm mínútur voru eftir jafnaði Stefán Magni Hjartarson í 31-31. Sigurjón Bragi Atlason kom sterkur inn í mark Aftureldingar á lokakaflanum og varði meðal annars í stöðunni 31-31. FH komst aftur yfir, 32-31, en Hákon Daði jafnaði með sínu tíunda marki. Jón Bjarni Ólafsson kom FH í 33-32 áður en Haraldur Björn Hjörleifsson jafnaði í 33-33 þegar tæplega ein og hálf mínúta var eftir. Haraldur fékk síðan tækifæri til að koma Aftureldingu yfir í lokasókn heimamanna en Jón Þórarinn Þorsteinsson varði. FH keyrði upp í sókn en Mosfellingar stöðvuðu hana með broti. Ómar Darri Sigurgeirsson tók síðasta skot leiksins úr aukakasti en boltinn fór í hávörn Aftureldingar og liðin skiptu því stigunum á milli sín. Hákon Daði var markahæstur Aftureldingar með tíu mörk úr tíu skotum. Árni Bragi Eyjólfsson og Harri Halldórsson skoruðu sjö mörk hvor. Harri fékk að líta rauða spjaldið þegar lítið var eftir af leiknum eftir brot á Ómari Darra Sigurgeirssyni. Leonharð Þorgeir Harðarson og Ómar Darri voru markahæstir hjá FH með sjö mörk hvor en Símon Michael Guðjónsson skoraði sex. Jón Þórarinn varði ellefu skot í marki FH. Einar Baldvin Baldvinsson varði níu skot fyrir Aftureldingu og Sigurjón Bragi þrjú eftir að hann kom inn á. Mörk Aftureldingar: Hákon Daði Styrmisson 10, Árni Bragi Eyjólfsson 7, Harri Halldórsson 7, Stefán Magni Hjartarson 4, Haraldur Björn Hjörleifsson 2, Ævar Smári Gunnarsson 1, Oscar Sven Leithoff Lykke 1, Þorvaldur Tryggvason 1. Mörk FH: Leonharð Þorgeir Harðarson 7, Ómar Darri Sigurgeirsson 7, Símon Michael Guðjónsson 6, Antoine Óskar Pantano 4, Ágúst Guðmundsson 3, Brynjar Narfi Arndal 2, Eiður Rafn Valsson 1, Einar Rafn Eiðsson 1, Ingvar Dagur Gunnarsson 1, Jón Bjarni Ólafsson 1.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.