
Afturelding vann óvæntan þriggja marka sigur á FH, 27-24, í toppslag Grill 66-deildar kvenna á fimmtudagskvöld. Samstarf Aftureldingar og Hauka vakti ekki síður athygli í nýjasta þætti Handkastsins. Stymmi klippari, Ásgeir Gunnarsson og Davíð Már Kristinsson settust niður í Rapyd-stúdíóinu og fóru yfir það helsta í heimi handboltans. „Það sem kemur mest á óvart í þessu öllu saman er að Afturelding og Haukar eru komin í venslasamstarf. Það eru ungar stelpur úr Haukum sem eru að spila með Aftureldingu í Grill 66-deildinni. Ég veit ekki hvort þær fái far með Basta af Ásvöllum,“ sagði Stymmi klippari. Sebastian Alexandersson, þjálfari kvennaliðs Aftureldingar, starfar einnig sem tækniþjálfari hjá Haukum. Roksana Jaros, unglingalandsliðskona úr Haukum, skoraði tvö mörk fyrir Aftureldingu í sigrinum á FH. Þá voru þær Kristín Ása Egilsdóttir og markvörðurinn Erla Rut Viktorsdóttir einnig í leikmannahópi Mosfellinga en þær eru allar einnig í Haukum. Stymmi spurði FH-inginn Ásgeir Gunnarsson hvernig honum litist á samstarf af þessu tagi. „Bæði og. Grill 66-deild kvenna er umræðuefni út af fyrir sig, hvernig hún er. Ég fór á leik FH og Gróttu 2 og maður fékk ekki mikið fyrir peninginn þar. Þá hugsaði maður: Hvað verður um þetta tímabil?“ sagði Ásgeir. Davíð Már velti því fyrir sér hvort fleiri sambærileg samstarfsverkefni væru í farvatninu. „Ég er svolítið spenntur að sjá hvort þetta sé upphafið að fleiri venslasamstörfum kvennamegin,“ sagði Davíð Már. „Það verður fróðlegt að sjá hvort fleiri félög fari í samstarf. Ekki veitir af,“ bætti Stymmi við. Það verður fróðlegt að sjá þróunina á vensla samstarfinu milli Hauka og Aftureldingar í vetur.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.