Löwen sneri sex marka mun – Haukur skoraði fimm
UWE ANSPACH / dpa Picture-Alliance via AFP

Haukur Þrastarson skoraði fimm mörk þegar Rhein-Neckar Löwen vann HBW Balingen-Weilstetten, 29-27, í eina leik kvöldsins í þýsku Bundesligunni.

Balingen var fimm mörkum yfir í hálfleik, 14-9, og náði mest sex marka forskoti. Heimamenn sneru leiknum hins vegar sér í hag eftir hlé, meðal annars fyrir tilstilli markvarðarins Davids Späth, sem varði 16 skot.

Marius Steinhauser var markahæstur hjá Rhein-Neckar Löwen með sjö mörk og skoraði síðasta mark leiksins. Sascha Pfattheicher var markahæstur Balingen með sjö mörk.

Rhein-Neckar Löwen og Balingen hafa bæði unnið tvo leiki og tapað tveimur eftir fjórar umferðir. Liðin eru því bæði með fjögur stig en Balingen er fyrir ofan Löwen vegna betri markatölu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top