Misjöfn úrslit hjá Íslendingaliðunum – Barcelona vann stórsigur
Instagram HSG XeNTiS Bärnbach/Köflach)

Barcelona hóf titilvörn sína í spænsku úrvalsdeildinni með stórsigri en Íslendingaliðin Bärnbach/Köflach í Austurríki og Chambéry í Frakklandi töpuðu bæði með minnsta mun í dramatískum leikjum í gærkvöldi.

Barcelona vann öruggan 48-32 útisigur á Logroño eftir að hafa leitt 26-17 í hálfleik. Katalóníuliðið tók strax stjórnina, náði sjö marka forskoti á fyrsta stundarfjórðungnum og lét forystuna aldrei af hendi.

Logroño minnkaði muninn í sjö mörk eftir hlé en Barcelona svaraði með fimm mörkum í röð og gerði endanlega út um leikinn. Janus Daði Smárason kom við sögu en skoraði ekki. Viktor Gísli Hallgrímsson fékk einnig mínútur í marki Barcelona í síðari hálfleik. Ludovic Fabregas var markahæstur Barcelona með átta mörk.

Bärnbach/Köflach tapaði 30-29 fyrir Graz í miklum spennuleik í austurrísku úrvalsdeildinni. Heimamenn byrjuðu betur og komust í 11-7 en staðan var jöfn, 13-13, í hálfleik.

Graz náði fjögurra marka forskoti, 23-19, í síðari hálfleik en Bärnbach barðist til baka og jafnaði í 29-29. Kilian Schranzskoraði hins vegar sigurmark Graz þegar aðeins fjórar sekúndur voru eftir.

Tumi Steinn Rúnarsson var ekki í leikmannahópi Bärnbach/Köflach. Ivan Horvat og Kenan Pajt voru markahæstir heimamanna með sjö mörk hvor.

Chambéry tapaði einnig með einu marki, 33-32, gegn Sélestat í frönsku úrvalsdeildinni. Chambéry leiddi 16-14 í hálfleik en heimamenn sneru leiknum sér í hag eftir hlé.

Staðan var jöfn, 28-28, þegar skammt var eftir en Sélestat komst í 30-28. Chambéry hélt sér inni í leiknum fram á síðustu sekúndur áður en Téo Egermann skoraði sigurmark heimamanna við lokaflautið. Sveinn Jóhannsson lék með Chambéry en komst ekki á blað.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top