Fram lánar Söru Rún
Fram

Sara Rún Gísladóttir er gengin til liðs við Stjörnuna á láni frá Fram og mun því leika með Garðabæjarliðinu í Olís-deild kvenna.

Sara Rún er tvítug og uppalin hjá Fram. Hún leikur bæði sem leikstjórnandi og vinstri skytta og hefur undanfarin ár verið í stóru hlutverki með Fram 2 í Grill 66-deildinni samhliða því að banka á dyrnar hjá aðalliði félagsins.

Hún skoraði 141 mark í 16 leikjum með Fram 2 í Grill 66-deildinni á síðustu leiktíð, eða 8,8 mörk að meðaltali í leik, og var markahæsti leikmaður liðsins og fimmta markahæst í deildinni. Á lokahófi Fram í vor var Sara Rún jafnframt valin besti leikmaður Fram 2.

Þetta var annað tímabilið í röð þar sem Sara Rún var á meðal markahæstu leikmanna Grill 66-deildarinnar. Hún varð markadrottning deildarinnar tímabilið 2024/25 þegar hún skoraði 121 mark í 17 leikjum.

Sara Rún kom við sögu með Fram í fyrstu umferð Olís-deildarinnar á þessu tímabili þegar liðið vann Gróttu. Hún var hins vegar utan leikmannahóps Fram gegn Stjörnunni í annarri umferðinni á föstudagskvöldið en þá hafði hún þegar fengið leikheimild með Garðabæjarliðinu.

Stjarnan hefur farið illa af stað á tímabilinu og tapað fyrstu tveimur leikjum sínum, fyrst gegn ÍR og síðan gegn Fram. Miklar breytingar hafa orðið á leikmannahópi Stjörnunnar frá síðustu leiktíð og er Sara Rún ellefti leikmaðurinn sem gengur í raðir félagsins fyrir yfirstandandi tímabil.

Sara Rún hefur einnig verið viðloðandi yngri landslið Íslands undanfarin ár en hún fór með U20 ára landsliðinu á HM í Kína í sumar.

Fyrsti leikur Söru með Stjörnunni verður næstu helgi þegar Stjarnan heimsækir Gróttu heim á Seltjarnarnesið.

Komnar:
Trude Blestrud Håkonsen frá KA/Þór
Sara Winde frá Skövde (Svíþjóð)
Valgerður Elín Snorradóttir frá Víking
Erla Sif Leósdóttir frá Val
Sigrún Erla Þórarinsdóttir frá Val
Elín Vilhjálmsdóttir frá Haukum
Embla Heiðarsdóttir frá Val
Dora Pajic frá Osijek (Króatíu)
Fruzsina Nagy frá Érdi Sport (Ungverjalandi)
Sunna Katrín Hreinsdóttir frá Víkingi
Sara Rún Gísladóttir frá Fram (á láni)

Farnar:
Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir í Hauka
Guðmunda Auður Guðjónsdóttir í Hauka
Eva Björk Davíðsdóttir í Gróttu
Hanna Guðrún Hauksdóttir í Fram
Rakel Dóróthea Ágústsdóttir í Aftureldingu
Rakel Guðjónsdóttir
Þóra Hrafnkelsdóttir í Hauka (var á láni)
Aníta Björk Valgeirsdóttir - í nám erlendis

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top