Sendir sérfræðingum Handkastsins tóninn eftir draumabyrjun
Sævar Jónasson

Sólveig Lára Kjærnested, leikmaður ÍR, segir leikmenn liðsins hafa óbilandi trú á eigin getu þrátt fyrir að fólk innan handboltahreyfingarinnar virðist ekki hafa sömu væntingar til liðsins.

ÍR hefur byrjað tímabilið í Olís-deild kvenna með tveimur sigrum. Liðið vann Stjörnuna með þriggja marka mun í fyrstu umferðinni og lagði nýliða HK, 20-18, á laugardaginn.

„Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum og við erum með meiri trú en fólk í kringum okkur virðist hafa, eins og í handboltahreyfingunni. Fyrsta markmið er bara efri hlutinn og svo eigum við okkur alls konar draumamarkmið sem okkur langar að ná,“ sagði Sólveig Lára meðal annars í viðtali við Vísi eftir sigurinn gegn HK.

Ummælin má mögulega túlka sem skot á þá sem spáðu ÍR um miðja deild í aðdraganda tímabilsins, þar á meðal sérfræðinga Handkastsins. Byrjun liðsins lofar þó góðu, þótt fyrstu tveir sigrarnir hafi komið gegn Stjörnunni og HK sem báðum hefur verið spáð botnbaráttu.

Næsti leikur ÍR er gegn KA/Þór í 3. umferð deildarinnar næstkomandi laugardag klukkan 15. KA/Þór er enn án stiga eftir fyrstu tvo leiki tímabilsins.

Rætt var um kvennalið ÍR í nýjasta þætti Handkastsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top