
Orri Freyr Þorkelsson er sagður ganga til liðs við þýska úrvalsdeildarfélagið Gummersbach frá Sporting að loknu yfirstandandi tímabili. Portúgalska íþróttablaðið O JOGO greinir frá því að samkomulag sé í höfn um félagaskiptin. Þau hafa þó ekki verið staðfest opinberlega af Sporting eða Gummersbach. Handkastið greindi fyrst allra miðla frá því í síðustu viku að Orri Freyr væri orðaður við Gummersbach. Nú virðist sem viðræður hafi skilað árangri og að íslenski landsliðsmaðurinn sé með allt klárt við þýska félagið. Orri Freyr hefur leikið með Sporting frá árinu 2023 og fest sig í sessi sem einn af lykilmönnum liðsins. Hann kom til portúgalska félagsins frá Elverum í Noregi. Íslendingatengingin hjá Gummersbach er nú þegar sterk. Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar liðið og íslensku landsliðsmennirnir Teitur Örn Einarsson, Elliði Snær Viðarsson og Garðar Ingi Sindrason leika með félaginu. Orri Freyr yrði því fjórði íslenski leikmaðurinn í leikmannahópi Gummersbach. Miklar breytingar verða á leikmannahópi Sporting fyrir næsta tímabil. Samkvæmt O JOGO er brasilíski línumaðurinn Edy Silva einnig á förum og hefur þegar skrifað undir samning við Paris Saint-Germain. Áður hafði verið staðfest að bræðurnir Martim Costa og Francisco „Kiko“ Costa gengju til liðs við Flensburg. Ricardo Costa, þjálfari Sporting, sagði á dögunum að félagið hefði unnið að varaáætlun undanfarin tvö ár og að hann væri nú að endurskipuleggja liðið frá grunni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.