
Ólöf Ásta Arnþórsdóttir nýr leikmaður Víkings hefur vakið athygli í upphafi tímabils í Grill 66 deildinni. Er hún komin með 17 mörk í 2 leikjum og hefur átt flottar frammistöður. Ólöf Ásta sem er fædd árið 1999 er að snúa aftur í handboltann eftir 5 ára pásu frá æfingum og keppni. Á árum áður lék hún með Fjölni og var einnig á mála hjá Stjörnunni og HK um tíma. En nú er hún komin á fullt aftur. Við heyrðum aðeins í Ólöfu og fengum hana til að segja okkur frá því afhverju hún þurfti að segja skilið við handboltann á sínum tíma, hvað kemur til að hún snúi aftur, tímabilið framundan hjá Víking osfrv. "Ég hætti í handbolta árið 2021 þegar ég var í fullri vinnu og flugnámi og náði einfaldlega ekki að sinna þessu almennilega með. Síðustu 2 ár hef ég svo verið mikið erlendis vegna vinnunnar sem flugmaður hjá Atlanta" "Núna er vinnufyrirkomulagið hinsvegar orðið þannig að ég er þrjár vikur erlendis og svo þrjár vikur heima. Mig hafði lengi langað að byrja aftur en hélt að fjarveran myndi gera það erfitt. Svo hafði Eva, þáverandi þjálfari Víkings samband í sumar þegar hún frétti að ég yrði meira heima og náði að plata mig á æfingu í ágúst og eftir það var eiginlega ekki aftur snúið" "Mér fannst Víkingur passa mjög vel við aðstæður hjá mér og þar fékk ég tækifæri til að taka að mér stærra hlutverk þrátt fyrir fjarveruna. Hópurinn er efnilegur og skemmtilegur og umgjörðin mjög flott. Það hefur verið ótrúlega gaman að komast aftur í boltann eftir svona langt hlé enda hefur handbolti alltaf verið stór partur af mér og mínu lífi" "Tímabilið leggst annars mjög vel í mig. Ég er spennt að sjá hvað við getum gert og ætla að njóta þess að vera komin aftur á völlinn. Þetta verður smá púsl að samræma þetta með vinnunni en ég verð á fullu með liðinu þegar ég er heima. Við stefnum að sjálfsögðu hátt og okkur langar að vinna okkur inn sæti í Olís deildinni að ári" sagði Ólöf Ásta Arnþórsdóttir, nýr leikmaður Víkings að lokum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.