Markahæstu leikmenn Olís kvenna eftir 2.umferð
Egill Bjarni Friðjónsson

3.umferðin í Olís-deild kvenna hefst í dag fjórum leikjum en umferðin lýkur annað kvöld með stórleik Hauka og Vals á Ásvöllum. Sá leikur hefst klukkan 18:00 og verður sýndur í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans.

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir er markahæsti leikmaður Olís-deildarinnar eftir tvær umferðir með 23 mörk en Katrín Scheving leikmaður Gróttu kemur næst með 21 mark. Grótta fær Stjörnuna í heimsókn klukkan 13:30 í dag.

Færeyingurinn, Joan Rúnadóttir leikmaður KA/Þórs er þriðja markahæst með 18 mörk en KA/Þór fer í Breiðholtið í dag og mætir þar ÍR í lokaleik dagsins klukkan 15:00.

Leikir dagsins:
13:00 Fram - HK
13:30 Grótta - Stjarnan
14:00 ÍBV - Selfoss
15:00 ÍR - KA/Þór

Leikur morgundagsins:
18:00 Haukar - Valur

Hér má sjá markahæstu leikmenn Olís-deildar kvenna eftir 1.umferðina:

  1. Jóhanna Margrét Sigurðardóttir (Haukar) - 23 mörk
  2. Katrín S. Scheving Thorsteinsson (Grótta) - 21 mark
  3. Joan Rúna­dóttir Johannesen (KA/Þór) - 18 mörk
  4. Sara Dögg Hjaltadóttir (ÍR) - 14 mörk
  5. Hulda Dagsdóttir (Fram) - 14 mörk
  6. Sandra Erlingsdóttir (ÍBV) - 13 mörk
  7. Sonja Lind Sigsteinsdóttir (Haukar) - 12 mörk
  8. Inga Maria Roysdóttir (Stjarnan) - 12 mörk
  9. Valgerður Elín Snorradóttir (Stjarnan) - 12 mörk
  10. Embla Steindórsdóttir (Haukar) - 11 mörk
  11. Guðrún Hekla Traustadóttir (Valur) - 11 mörk
  12. Karlotta Kjerúlf Óskarsdóttir (Grótta) - 11 mörk

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top