Leikstjórnandinn Eva Aðalsteinsdóttir hefur skrifað undir samning við FH og mun leika með liðinu í Grill 66-deild kvenna á yfirstandandi tímabili. Eva er 26 ára gömul, uppalin hjá ÍBV og fyrrverandi unglingalandsliðskona Íslands. Hún hafði lagt handboltaskóna til hliðar þegar hún kom inn í herbúðir FH fyrir tveimur árum sem sjúkraþjálfari liðsins. Leitað var til Evu á síðari hluta síðasta tímabils og tók hún þá skóna aftur fram og lék með FH. Nú hefur hún ákveðið að taka slaginn með liðinu út tímabilið og styrkir því leikmannahóp FH í Grill 66-deildinni. Eva lét strax til sín taka í gær þegar FH mætti HK 2 en hún var markahæsti leikmaður FH í leiknum með sjö mörk. FH vann leikinn með tólf mörkum 31-19 og er með fjögur stig að loknum þremur leikjum í Grill66-deildinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.