Grænlensk landsliðskona gengin til liðs við Víking
Víkingur

Grænlenska landsliðskonan Ane-Sofiannguaq Petrine Frederiksen er gengin til liðs við Víking og hefur þegar leikið sinn fyrsta leik fyrir félagið í Grill 66-deild kvenna.

Frederiksen er fædd árið 2001 og verður 25 ára í október, leikur í hægra horni. Hún á að baki reynslu með grænlenska landsliðinu og var meðal annars í leikmannahópi Grænlands á heimsmeistaramótinu árið 2023.

Hún hefur einnig leikið í Danmörku en Frederiksen var á mála hjá Silkeborg-Voel áður en hún sneri aftur til Grænlands og lék með GSS.

Frederiksen fékk leikheimild með Víkingi á fimmtudaginn og var strax komin í leikmannahóp liðsins þegar Víkingur mætti Val 2 í 3. umferð Grill 66-deildarinnar á föstudaginn. Hún hefur æft með Víking frá því í ágúst en missti af tveimur fyrstu leikjum liðsins í Grill66-deildinni.

Hún skoraði eitt mark í frumraun sinni en Víkingur hafði betur gegn Val 2 en Víkingur er með fullt hús stiga eftir fyrstu þrjá leiki tímabilsins með sex stig eins og Afturelding.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top