Benedikt mættur til Holstebro eftir erfið meiðsli
TTH Holstebro

Benedikt Gunnar Óskarsson er mættur til Danmerkur og hefur tekið til starfa hjá nýju félagi sínu, TTH Holstebro, eftir afar óvenjulegt og erfitt sumar.

Benedikt, sem er 23 ára leikstjórnandi, varð fyrir höfuðmeiðslum í sumarfríinu með þeim afleiðingum að hann missti allan kraft í hægri hendinni.

Benedikt Óskarsson lenti í óhugnalegu atviki á golfvellinum

Meiðslin urðu til þess að Benedikt gat ekki tekið þátt í undirbúningstímabili Holstebro með nýjum liðsfélögum sínum en hann gekk í raðir félagsins í sumar frá norsku meisturunum í Kolstad. ,,Síðustu mánuði hefur áherslan þess í stað verið lögð á endurhæfingu og að ná fullum styrk aftur í höndina," segir í tilkynningu frá danska félaginu.

Holstebro greindi frá því í dag að Benedikt væri nú kominn til bæjarins og farinn að koma sér fyrir og taka þátt í daglegu starfi félagsins.

Enn liggur ekki fyrir hvenær íslenski landsliðsmaðurinn getur snúið aftur á handboltavöllinn. Félagið segir enga dagsetningu hafa verið setta á endurkomu hans og að áfram verði lögð áhersla á að hann nái styrk í höndina aftur á réttum hraða.

,,Benedikt hefur þegar fengið að kynnast heimavelli Holstebro úr stúkunni en vonir standa til þess að hann geti sjálfur hlaupið þar inn á völlinn þegar heilsan leyfir."

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top