
Danska stórliðið Álaborg er nálægt því að ganga frá samningi við færeysku stórstjörnuna Elias Ellefsen á Skipagøtu, leikmann THW Kiel. TV 2 Sport í Danmörku greinir frá þessu samkvæmt heimildum sínum. Álaborg hefur undanfarin ár sótt leikmenn úr allra efstu hillu og félagið virðist nú vera við það að landa enn einni stórstjörnunni. Samkvæmt heimildum TV 2 Sport er Álaborg nálægt því að geta tilkynnt um samkomulag við Elias og er gert ráð fyrir að hann gangi til liðs við danska félagið næsta sumar. Elias hefur leikið með þýska stórliðinu THW Kiel frá árinu 2023 en hann kom þangað frá sænska liðinu Sävehof. Færeyski leikstjórnandinn hefur á undanförnum árum skipað sér í hóp fremstu leikmanna heims og er honum ætlað að vera í stóru hlutverki hjá Álaborg í þeirri vegferð félagsins að láta drauminn um sigur í Meistaradeild Evrópu verða að veruleika. Álaborg gæti verið að missa Juri Knorr til PSG og er Elias einn af þeim leikmönnum sem hafa verið orðaðir við komu í Álaborg. Leikmenn á borð við Felix Claar og Magnus Saugstrup, leikmenn SC Magdeburg hafa einnig verið orðaðir við Álaborg en það yrði þá mögulega næsta sumar eða sumarið 2028.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.