Jóhanna svekkt að vera ekki í landsliðinu
Egill Bjarni Friðjónsson

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, leikmaður Hauka, hefur farið frábærlega af stað í Olís-deild kvenna á tímabilinu og verið valin í Cell-Tech lið umferðarinnar hjá Handkastinu eftir allar þrjár umferðir deildarinnar.

Haukar er á toppi Olís-deildarinnar með fullt hús stiga ásamt Fram og ÍR.

Þrátt fyrir frammistöðuna var Jóhanna Margrét ekki valin í æfingahóp íslenska landsliðsins sem kemur saman í dag og æfir hér á landi í vikunni.

Jóhanna var spurð út í ákvörðun Arnars Péturssonar landsliðsþjálfara eftir sigur Hauka gegn Val í toppbaráttuslag Olís-deildarinnar í gær.

„Auðvitað er það svekkjandi. Auðvitað vill maður spila fyrir landsliðið, en maður heldur bara áfram að gera sitt og vonandi skilar það sér,“ sagði Jóhanna Margrét í samtali við Vísi.

Jóhanna hefur svo sannarlega látið verkin tala á vellinum. Hún er næstmarkahæsti leikmaður Olís-deildarinnar eftir fyrstu þrjár umferðirnar með 35 mörk, eða tæplega tólf mörk að meðaltali í leik.

Aðeins Katrín Scheving, leikmaður Gróttu, hefur skorað meira en hún en Katrín hefur gert 36 mörk.

Frammistaða Jóhönnu Margrétar og sú staðreynd að hún hafi ekki verið valin í landsliðshópinn var einnig til umræðu í nýjasta þætti Handkastsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top