Nokkrir Íslendingar voru í eldlínunni með félagsliðum sínum í Evrópu í gær. Íslendingaliðin unnu þrjá af fjórum leikjum en Kadetten Schaffhausen tapaði stórleik svissnesku deildarinnar. Þorgils Jón Svölu Baldursson og félagar í Caserío Ciudad Real unnu sex marka sigur gegn Horneo Alicante, 35-29, í spænsku úrvalsdeildinni. Caserío náði snemma undirtökunum og var sjö mörkum yfir í hálfleik, 20-13. Alicante bætti leik sinn eftir hlé en heimamenn héldu forskotinu og fögnuðu sínum fyrsta sigri á tímabilinu eftir jafntefli í fyrstu umferð. Spænska stórliðið Barcelona vann einnig öruggan útisigur þegar liðið lagði Puente Genil, 39-27. Janus Daði Smárason og Viktor Gísli Hallgrímsson eru leikmenn Barcelona. Porto átti ekki í vandræðum með Belenenses í portúgölsku deildinni og vann fimmtán marka sigur, 40-25. Þorsteinn Leó Gunnarsson var ekki í leikmannahópi Porto. Hann gekkst nýverið undir aðgerð vegna alvarlegra ökklameiðsla og verður frá keppni næstu mánuðina. Bjarki Már Elísson skoraði fjögur mörk þegar Paris Saint-Germain vann sannfærandi níu marka sigur gegn Chartres í frönsku úrvalsdeildinni, 35-26. Óðinn Þór Ríkharðsson var fullkominn í sínum skotum þegar Kadetten Schaffhausen tapaði fyrir ríkjandi meisturum HC Kriens-Luzern, 38-32, í stórleik svissnesku deildarinnar. Óðinn Þór skoraði átta mörk úr jafnmörgum skotum og nýtti öll fjögur vítaköst sín. Hann var markahæstur í liði Kadetten en Mykola Bilyk var markahæstur í leiknum með níu mörk fyrir Kriens. Kadetten var tveimur mörkum undir í hálfleik, 20-18, en lenti í miklum vandræðum eftir hlé og var meðal annars án marks í rúmar átta mínútur. Munurinn varð mest tólf mörk áður en Kadetten lagaði stöðuna undir lokin. Þetta var fyrsta tap Kadetten á tímabilinu. Liðið er í öðru sæti deildarinnar með níu stig eftir sex leiki en Kriens er á toppnum með fullt hús stiga.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.