Blær Hinriksson og Adam Thorstensen fögnuðu báðir sigri með liðum sínum í þýsku B-deildinni í gær. Blær og félagar í SC DHfK Leipzig unnu HC Elbflorenz, 37-35, í saxneska nágrannaslagnum. Leipzig var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 18-14. Leipzig byrjaði leikinn af miklum krafti og komst í 7-2 eftir tæplega tíu mínútur. Gestirnir höfðu tögl og hagldir lengst af og virtust hafa gert út um leikinn þegar þeir náðu níu marka forskoti, 32-23, eftir 47 mínútur. Blær Hinriksson skoraði tvö mörk í leiknum en Matej Klima var markahæstur með tíu mörk. Elbflorenz neitaði þó að gefast upp og minnkaði muninn niður í tvö mörk á lokakaflanum. Leipzig hélt út og fagnaði mikilvægum 37-35 sigri fyrir framan 2.700 áhorfendur í Dresden. Liðið hefur þar með unnið alla fjóra leiki sína í deildinni á tímabilinu. Adam Thorstensen og félagar í VfL Lübeck-Schwartau unnu á sama tíma þriggja marka heimasigur gegn Hüttenberg, 31-28. Lübeck var 13-11 yfir í hálfleik og náði mest sjö marka forskoti í síðari hálfleik, 25-18. Hüttenberg minnkaði muninn niður í tvö mörk undir lokin en heimamenn héldu haus og tryggðu sér sigurinn. Adam var í leikmannahópi Lübeck en Mark Ferjan stóð nánast allan leikinn í marki liðsins og varði 13 skot. Einar Nickelsen var markahæstur hjá Lübeck með níu mörk og Jan-Eric Speckmann skoraði fimm. Þetta var þriðji sigur Lübeck í fyrstu fjórum leikjum tímabilsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.