Ásdís Þóra Ágústsdóttir, leikmaður Vals, hefur ekki leikið með liðinu í síðustu tveimur leikjum þess í Olís-deild kvenna vegna meiðsla aftan í læri. Ásdís Þóra varð fyrir meiðslunum á æfingu í vikunni fyrir leik Vals gegn ÍBV og hefur síðan þurft að fylgjast með af hliðarlínunni. „Hún fékk aftan í læri í vikunni fyrir ÍBV-leikinn og eftir nánari skoðun gat hún ekki tekið þátt í leikjunum við ÍBV né Hauka. Vonandi kemur hún inn sem fyrst,“ sagði Anton Rúnarsson, þjálfari Vals, í samtali við Handkastið. Ásdís Þóra missti því bæði af leiknum gegn ÍBV og toppbaráttuslagnum gegn Haukum á Ásvöllum um síðustu helgi. Valur hafði betur gegn ÍBV en tapaði gegn Haukum 28-24. Valur er með tvö stig að loknum fyrstu þremur leikjunum. Nú tekur við landsliðsvika og því verður ekkert leikið í Olís-deildinni í vikunni. Valskonur fá því nokkra daga til viðbótar áður en næsta verkefni tekur við. Valur mætir KA/Þór í 4. umferð Olís-deildarinnar 2. október og vonast Valsmenn til þess að Ásdís Þóra verði þá orðin leikfær á ný.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.