Nantes og spænska landsliðið verða fyrir áfalli
Julien Kammerer /AFP

Franska stórliðið HBC Nantes varð fyrir miklu áfalli þegar spænski landsliðsmaðurinn Kauldi Odriozola sleit fremra krossband í hné.

Odriozola meiddist eftir aðeins 17 mínútna leik í 33-32 sigri Nantes gegn Vardar Skopje í Meistaradeild Evrópu í síðustu viku. Nantes var þá með þriggja marka forskot, 12-9.

Rannsóknir eftir leikinn leiddu í ljós að fremra krossbandið væri slitið. Hinn 29 ára gamli hægri hornamaður verður frá keppni næstu mánuðina og er talið líklegt að tímabilið sé búið hjá honum.

Odriozola gekk til liðs við Nantes frá Bidasoa Irun árið 2022 og hefur síðan verið mikilvægur hlekkur í liðinu. Hann er einnig spænskur landsliðsmaður. Meiðslin þýða það að, Luka Peric mun væntanlega fá stærra hlutverk í fjarveru Odriozola en Nantes gæti einnig þurft að leita að tímabundnum liðsstyrk.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top