Anita Muratovic, leikmaður kvennaliðs Víkings, varð fyrir hnémeiðslum í leik liðsins gegn HK 2. umferð Grill66-deildarinnar. Anita lenti illa á vinstri fæti eftir samstuð við annan leikmann og fann strax fyrir miklum verkjum í hnénu. ,,Ég lenti í samstuði við annan leikmann og kom illa niður á vinstri fótinn. Ég fann strax að eitthvað var að í hnénu og fékk töluverða verki,“ sagði Anita í samtali við Handkastið. Hún hefur þegar farið í nokkra tíma hjá sjúkraþjálfara og segir ástand hnésins hafa batnað. Næstu daga fer hún í myndatöku sem ætti að leiða betur í ljós hvers eðlis meiðslin eru. „Félagið hefur stutt mig mjög vel frá því að meiðslin urðu og séð um allt sem tengist læknisskoðunum og eftirfylgni. Ég hef þegar farið í tvo eða þrjá tíma hjá sjúkraþjálfara sem hafa hjálpað og hnénu líður betur. Ég fer einnig í myndatöku á hnénu á næstu dögum. Hún ætti að gefa okkur skýrari mynd af meiðslunum og hjálpa okkur að ákveða næstu skref.“ Ekki liggur því fyrir hversu lengi Anita verður frá keppni. „Núna er aðaláherslan á að jafna mig. Ég tek einn dag í einu, fylgi ráðleggingum lækna og gef hnénu þann tíma sem það þarf. Ég er mjög þakklát félaginu, sjúkrateyminu og öllum þeim sem hafa stutt mig í gegnum þetta ferli,“ sagði Anita. Víkingur er með fullt hús stiga í Grill66-deildinni eftir þrjár umferðir en Anita lék ekki með liðinu í sigri gegn Val 2 í síðustu umferð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.