Reynir sló Hauk út í bikarnum – Einar og félagar áfram
Sævar Jónasson

Tveir leikir fóru fram í 2. umferð þýsku DHB-bikarkeppninnar í kvöld og komu Íslendingar við sögu í báðum leikjum.

MT Melsungen tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum eftir æsispennandi 35-33 sigur gegn Rhein-Neckar Löwen eftir framlengingu. Reynir Þór Stefánsson og Haukur Þrastarson voru báðir í stórum hlutverkum hjá sínum liðum.

Rhein-Neckar Löwen byrjaði betur og komst meðal annars í 5-2. Melsungen vann sig inn í leikinn og náði forystunni en gestirnir svöruðu aftur og voru 17-16 yfir í hálfleik.

Löwen náði aftur þriggja marka forskoti í síðari hálfleik en Melsungen neitaði að gefast upp. Reynir Þór skoraði meðal annars jöfnunarmarkið í 25-25. Löwen komst síðar í 28-25 en Melsungen jafnaði í 28-28 og Florian Drosten tryggði framlengingu þegar hann jafnaði í 29-29 úr vítakasti.

Rhein-Neckar Löwen var 32-31 yfir eftir fyrri hluta framlengingarinnar en Melsungen sneri leiknum sér í vil á lokamínútunum. David Mandic kom heimamönnum í 34-33 eftir stoðsendingu frá Reyni áður en Nebojsa Simic varði vítakast frá Kentin Mahé. Aaron Mensing skoraði síðan síðasta mark leiksins og innsiglaði 35-33 sigur Melsungen.

Reynir Þór skoraði sex mörk fyrir Melsungen og var næstmarkahæstur liðsins á eftir Mensing sem skoraði sjö. Florian Drosten skoraði einnig sex mörk. Haukur Þrastarson skoraði fimm mörk fyrir Rhein-Neckar Löwen og gaf auk þess fimm stoðsendingar. Jannik Kohlbacher var markahæstur gestanna með átta mörk.

Hamburg sneri ótrúlegum leik við

Í hinum leik kvöldsins slapp Handball Club Hamburg með skrekkinn gegn 2. deildarliði HC Elbflorenz Dresden og vann 31-30 á útivelli.

Dresden var sterkari aðilinn lengst af og leiddi 18-14 í hálfleik. Heimamenn héldu áfram að stjórna ferðinni eftir hlé og þegar rúmar 43 mínútur voru liðnar var staðan 26-21.

Hamburg átti hins vegar frábæran lokakafla. Liðið vann upp forskotið, jafnaði í 28-28 og komst síðan yfir. Frederik Bo Andersen skoraði tvö mörk í röð undir lokin og kom Hamburg í 31-29. Louis Bensch minnkaði muninn í eitt mark fyrir Dresden en Hamburg hélt út og vann 31-30.

Bo Andersen var markahæstur Hamburg með níu mörk. Einar Þorsteinn Ólafsson var í leikmannahópi Hamburg en komst ekki á blað í markaskorun. Hann fékk tveggja mínútna brottvísun í fyrri hálfleik.

Melsungen og Hamburg eru þar með komin áfram í 16-liða úrslit DHB-bikarsins en ellefu aðrir leikir 2. umferðar fara fram á miðvikudag og fimmtudag.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top