HSÍ býður stuðningsmönnum að koma og fylgjast með opinni æfingu íslenska kvennalandsliðsins í Safamýri á morgun. Æfingin hefst klukkan 13:30 en húsið verður opnað hálftíma fyrr, eða klukkan 13:00. Öllum er frjálst að mæta og gefst því gott tækifæri til að sjá Stelpurnar okkar í návígi. Að æfingunni lokinni munu landsliðskonurnar gefa eiginhandaráritanir og eru gestir hvattir til að taka með sér treyjur, bolta, plaköt eða annað sem þeir vilja fá áritað. Einnig verður boðið upp á ís frá EmmEss á meðan birgðir endast og því gæti borgað sig að mæta tímanlega. Íslenska landsliðið kom saman til æfinga á mánudag en æfingavikan er liður í undirbúningi liðsins fyrir Evrópumeistaramótið. Undirbúningurinn heldur svo áfram í haust. Liðið leikur tvo æfingaleiki gegn Póllandi ytra í október og mætir Svíþjóð í nóvember, áður en haldið verður til Rúmeníu. Evrópumótið fer fram dagana 3.–20. desember í Póllandi, Rúmeníu, Tékklandi, Slóvakíu og Tyrklandi. Ísland leikur í A-riðli ásamt Ungverjalandi, Svartfjallalandi og Slóveníu, og verður riðillinn leikinn í Oradea í Rúmeníu. Þetta verður fjórða stórmót liðsins í röð, en það tók þátt á HM 2023 og 2025 og EM 2024.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.