Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði átta mörk þegar Kadetten Schaffhausen vann Pfadi Winterthur, 35–28, á heimavelli í svissnesku úrvalsdeildinni í kvöld. Birgir Már Birgisson gerði fjögur mörk fyrir Zürich í 43–35 tapi á heimavelli gegn HC Kriens. Kadetten er í 2. sæti deildarinnar með ellefu stig eftir sjö leiki en Zürich í níunda sæti með fjögur stig. Í Portúgal skoraði Orri Freyr Þorkelsson sjö mörk þegar Sporting vann Belenenses, 43–27, á útivelli. Hann var markahæstur hjá Sporting ásamt bræðrunum Martim og Francisco Costa og Salvador Salvador, sem skoruðu einnig sjö mörk hver. Benfica, lið Breka Hrafns Árnasonar, vann síðan afar sannfærandi sigur á Avanca 38–20. Þorsteinn Leó Gunnarsson er frá vegna meiðsla og var ekki í leikmannahópi Porto sem vann öruggan sigur á Carvalhos. Sporting og Maritimo eru á toppi deildarinnar með fullt hús stiga með 15 stig. Porto er með 11 stig í 5.sæti deildarinnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.