Orðinn helvíti þreyttur á meiðslum Knorr
HENNING BAGGER / Ritzau Scanpix via AFP)

Þýski landsliðsmaðurinn Juri Knorr varð fyrir meiðslum undir lok bikarleiks Álaborgar gegn HØJ Elite í Danmörku í gærkvöldi.

Álaborg tryggði sér sæti í næstu umferð með 30-25 sigri en Knorr meiddist á ökkla í lokasókn Álaborgar í leiknum tók strax um ökklann. Knorr hefur verið að glíma við meiðsli á sama fæti og því voru meiðslin mikið áhyggjuefni fyrir Simon Dahl, þjálfara Álaborgar.

„Ég er helvíti þreyttur á þessu. Við vorum nánast komnir á leiðarenda með þennan fót og nú lítur út fyrir að hann hafi snúið sig aftur. Þetta pirrar mig virkilega,“ sagði Dahl við TV 2 Sport eftir leik.

Ekki liggur enn fyrir hversu alvarleg meiðsli Knorr eru og Álaborg hefur ekki gefið út frekari upplýsingar um ástand hans.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top