Sjónvarpsmál íslenska handboltans voru til umræðu í nýjasta þætti Handkastsins en nokkur óvissa virðist ríkja meðal handboltaáhugafólks um hvar hægt sé að horfa á leiki og þætti tengda Olís-deildunum. Handkastinu hafa meðal annars borist tölvupóstar frá hlustendum með fyrirspurnum um Handboltapassann og Livey. „Ég ætla að viðurkenna það að við í Handkastinu höfum verið að fá tölvupósta frá dyggum hlustendum sem mögulega halda að Handkastið sjái um Handboltapassann eða Livey en það er nú ekki alveg þannig. Ef það eru einhverjir sem eru með spurningar þá held ég að það sé best að senda beint á HSÍ eða Daníel Franz hjá HSÍ og spyrja þau hvernig þetta virkar allt saman.“ Sérfræðingurinn sagði að enn væri ákveðið flækjustig í kringum útsendingarnar og benti á að breyting virðist hafa orðið á aðkomu Sjónvarps Símans. „Það er ennþá smá flækjustig. Fólk virðist ekki vera að skilja hvar það getur horft á Handboltahöllina eftir á, hvar Handboltahöllin er sýnd og allt það. Ég er með smá fréttir, ég veit ekki hvort þið hafið tekið eftir því en Sjónvarp Símans hefur kúplað sig út úr þessu,“ sagði Sérfræðingurinn. „Ég var að leita að þessu um daginn og þetta var hvergi að finna,“ sagði Kristinn Björgúlfsson, gestur Handkastsins. Í tilkynningu HSÍ í lok ágúst kom fram að einn leikur í hverri umferð ætti að vera sýndur í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans. Nú virðist hins vegar hafa orðið breyting þar á og leikir í Olís-deildum karla og kvenna eru ekki lengur sýndir þar með sama hætti og undanfarin ár. „Leikirnir sem áttu að vera sýndir í opinni dagskrá á sunnudögum klukkan 18:00 í Sjónvarpi Símans eru ekkert lengur. Núna er þetta sýnt á Livey-rásinni, rás 13 svokallaðri,“ sagði Sérfræðingurinn. „Ef þú ert ekki með snjallvænt sjónvarp þá er þetta svolítið flókið,“ bætti hann við. Frekari umræða um sjónvarpsmálin, Handboltapassann og Livey má heyra í nýjasta þætti Handkastsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.