Sjáðu brotið sem gæti kostað Sæþór langt leikbann
UWE ANSPACH /AFP

Aganefnd HSÍ hefur frestað úrskurði í máli Sæþórs Arnar Garðarssonar, leikmanns ÍBV 2, um sólarhring. Hann fékk útilokun með skýrslu í bikarleik liðsins gegn Herði síðastliðinn laugardag og dómarar töldu brotið falla undir reglu 8:6 b).

Aganefnd telur brotið geta varðað lengra banni en einum leik. ÍBV hefur fengið kost á að skila inn athugasemdum áður en endanlegur úrskurður verður kveðinn upp.

Í myndskeiði af atvikinu sést Sæþór fyrst brjóta á Pétri Þór Jónssyni, leikmanni Harðar. Pétur liggur í gólfinu þegar Sæþór gengur að honum og virðist reka hnéð í andlit hans áður en hann gengur yfir hann. Ekki sést nægilega skýrt á myndskeiðinu hvort Sæþór stígur einnig ofan á Pétur. Pétur heldur um andlitið eftir atvikið. Hann skoraði fimm mörk í leiknum.

Sæþór virtist undrandi þegar dómarar sýndu honum rauða spjaldið. Liðsfélagar hans mótmæltu dómnum þó ekki, miðað við það sem sést á myndskeiðinu.

ÍBV 2 leikur eingöngu í Powerade-bikarnum og er komið í 16-liða úrslit. Dregið verður í þá umferð á morgun. Verði Sæþór úrskurðaður í leikbann gæti það því haft áhrif á þátttöku hans í næsta bikarleik liðsins.

Myndskeið af brotinu má sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top