Einn efnilegasti leikmaður landsins árið 2020 stefnir á endurkomu
(Kristinn Steinn Traustason)

Torfi Geir Halldórsson er sennilega nafn sem ekki allir kannast við en einhverjir hafa þó heyrt um. Torfi Geir var af mörgum talinn einn efnilegasti handboltamaður landsins er hann lék í yngri flokkum Fram þar sem hann raðaði inn mörkunum og var lykilmaður í gríðarlega efnilegum 2004 árgang Framara.

Torfi hætti þó í handbolta eftir tímabilið 2019/2020 og valdi að stunda knattspyrnu þar sem hann var einnig talinn gríðarlega efnilegur markvörður en í desember 2019 fór hann til að mynda á reynslu hjá danska stórliðinu FC Kaupmannahöfn.

Það varð hinsvegar ekki meira úr knattspyrnuferli Torfa en að skipta úr Fram yfir í Val, síðan í Breiðablik og síðast lék hann með Haukum í 2.deild karla síðasta sumar.

Nú hefur hann snúið til baka á handboltavöllinn og stefnir á endurkomu en hann hefur verið að æfa með Íslands- og bikarmeisturum Fram undanfarnar vikur og lék til að mynda með liðinu í æfingaleik gegn U19 ára landsliði karla í síðustu viku.

,,Hann ætlar að vera með og er að æfa með okkur á fullu. Það er einungis spurning hvað það tekur langan tíma fyrir að hann að komast í gang aftur," sagði Einar Jónsson þjálfari Fram í samtali við Handkastið.

Eins og fyrr segir var Torfi Geir gríðarlegt efni fyrir nokkrum árum í sterkum 2004 árgangi Framara og var til að mynda valinn maður leiksins er Fram varð Íslandsmeistari í 4.flokki yngri tímabilið 2019/2020 en hann átti stórleik í úrslitaleiknum gegn ÍR og skoraði 13 mörk.

Á síðasta tímabili sínu í 4.flokki eldri var tímabilið flautað af vegna heimsfaraldurs en þá var Framliðið á toppi 1.deildar.

Torfi Geir er sonur handboltaþjálfarans, Halldórs Jóhanns Sigfússonar sem þjálfar í dag HK. Það verður gríðarlega spennandi að sjá Torfa Geir aftur á vellinum í vetur í liði Fram sem þarf heldur betur á styrkingu að halda enda langt og strangt tímabil framundan hjá liðinu sem hafa misst lykilmenn út í atvinnumennsku.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top