Sæmilega spennufallið þegar maður sá Grétar verja lokaskotið
HSÍ / Mummi Lú

Össur Haraldsson fyrirliði Hauka var stórkostlegur í sigri Hauka gegn FH í Hafnarfjarðarslag, Olís-deildarinnar í gærkvöldi.

Össur gerði sér lítið fyrir og skoraði ellefu mörk úr ellefu skotum en Haukar unnu eins marks sigur 35-34. Össur var í viðtali við samfélagsmiðla Hauka eftir leikinn en hægt er að sjá viðtalið hér að neðan.

HAFNARFJÖRÐUR ER RAUÐUR EFTIR ÓTRÚLEGAR SENUR – GRÉTAR ARI HETJAN

,,Þetta er spennufall. Mér fannst við vera með þá nánast allan leikinn en einhvernveginn hleypum við þeim inn í þetta síðustu 10 mínúturnar í seinni hálfleik. En það er karakter að klára þetta og Grétar Ari… sæmilega spennufallið þegar maður sá hann verja lokaskotið. En það er nokkuð ljóst að við hefðum ekki getað þetta án stuðningsins úr stúkunni," sagði Össur í viðtalinu en Haukar eru á toppi deildarinnar með átta stig eftir fjórar umferðir en FH og Afturelding eru í 2. og 3.sæti deildarinnar með fimm stig.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top