Missti af lokasekúndunum og sendi Skolphreinsun Ásgeirs til Livey
J.L.Long

Stymmi klippari sendi Skolphreinsun Ásgeirs í höfuðstöðvar Livey í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins. Ástæðan var sú að útsending frá leik FH og Hauka í 4. umferð Olís-deildar karla var tekin úr loftinu í sjónvarpinu hans áður en leiknum lauk.

„Mér finnst þetta erfitt en ég verð að senda þá á vini mína hjá Livey sem voru að taka við handboltanum. Þeir hafa gert þetta vel og tekið þetta í gegn en þeir voru með FH–Hauka í opinni dagskrá á rás 13 á myndlyklinum mínum,“ sagði Stymmi.

Hann sagðist hafa verið með útsendinguna í gangi þegar FH tók leikhlé, sjö sekúndum fyrir leikslok. Þá hefði skyndilega verið skipt yfir í samantekt úr frönsku knattspyrnunni.

„Ég fór allt í einu að horfa á Lille–Brest. Strákar á Livey, handboltaleikur er ekki alltaf jafn langur, það getur ýmislegt gerst. Ég missti af lokasekúndum leiksins þökk sé Livey.“

Klipparinn missti því af þessum loka sekúndum í leiknum.

Sérfræðingurinn velti því fyrir sér hvort útsendingarskiptin hefðu verið liður í markaðssetningu: „Nú vita þeir sem eru ekki með áskrift hvað þeir eru að missa af.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top