Sveinn skoraði eitt mark í stórum skelli
FRISO GENTSCH / dpa Picture-Alliance via AFP

Sveinn Jóhannsson skoraði eitt mark þegar Chambéry steinlá á heimavelli gegn Tremblay, 44–31, í 4. umferð frönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta í gær.

Leikurinn var nokkuð jafn framan af en Tremblay náði fyrstu alvöru tökum á honum um miðjan fyrri hálfleik. Gestirnir leiddu með fimm mörkum í hálfleik, 24–19.

Tremblay tók síðan öll völd eftir hlé. Gestirnir skoruðu fyrstu tvö mörk síðari hálfleiks og héldu áfram að auka forskotið eftir því sem leið á leikinn. Lokatölur urðu 44–31 og því þrettán marka tap Sveins og félaga.

Sveinn skoraði eitt mark fyrir Chambéry. Elio Zammit var markahæstur heimamanna með fimm mörk en Lucas Vanègue og Baptiste Peyronnet skoruðu fjögur mörk hvor. Hjá Tremblay fór Raphaël Kötters fyrir liðinu með sjö mörk.

Chambéry hefur farið illa af stað í frönsku úrvalsdeildinni og er í 12. sæti með tvö stig eftir fjóra leiki. Liðið hefur unnið einn leik en tapað þremur. Eini sigurinn kom gegn Dunkerque í síðustu umferð, 38–29.

Chambéry snýr sér næst að Evrópukeppninni en liðið mætir Izvidac frá Bosníu og Hersegóvínu á útivelli á þriðjudaginn í 1.umferð Evrópudeildarinnar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top