Fjórir leikir fóru fram á HM félagsliða í handbolta í Egyptalandi í gær þar sem Barcelona, Füchse Berlin, Veszprém og Zamalek fögnuðu öll sigri. Barcelona vann öruggan ellefu marka sigur á brasilíska liðinu Pinheiros, 44–33, eftir að hafa verið sjö mörkum yfir í hálfleik, 23–16. Íslendingarnir tveir í herbúðum Barcelona komu báðir við sögu og sérstaklega var frammistaða Viktors Gísla Hallgrímssonar eftirtektarverð. Viktor Gísli lék allan síðari hálfleikinn í marki Barcelona og varði 14 skot. Hann endaði með 45 prósent markvörslu. Janus Daði Smárason skoraði tvö mörk fyrir spænska stórliðið. Barcelona byrjaði leikinn af miklum krafti og komst meðal annars í 6–1. Pinheiros náði að minnka muninn niður í þrjú mörk, 17–14, áður en Barcelona tók aftur við sér og fór með 23–16 forskot inn í hálfleik. Spænska stórliðið hélt síðan örugglega á forskotinu eftir hlé og vann að lokum 44–33. Barcelona mætir næst egypska stórliðinu Zamalek á sunnudaginn. Zamalek vann stórsigur á Montada frá Marokkó, 42–17, í gær og eru því bæði Barcelona og Zamalek með sigur eftir fyrstu umferð riðlakeppninnar. Füchse Berlin átti ekki í neinum vandræðum með Burgan frá Kúveit og vann tuttugu marka sigur, 38–18. Þýska liðið var níu mörkum yfir í hálfleik, 20–11. Aymeric Zaepfel var markahæstur Füchse með tíu mörk og Tim Freihöfer kom næstur með níu. Leo Prantner skoraði sjö mörk en danska stórstjarnan Mathias Gidsel skoraði fjögur mörk og gaf fjórar stoðsendingar þrátt fyrir takmarkaðan leiktíma. Stórleikur er fram undan hjá Füchse Berlin því liðið mætir Veszprém á sunnudaginn. Ungverska stórliðið hóf keppnina sömuleiðis á sigri þegar það lagði Al Ahly frá Egyptalandi, 31–23. Veszprém var með sjö marka forskot í hálfleik, 17–10. Úrslit gærdagsins á HM félagsliða: Pinheiros – Barcelona 33–44
Montada – Zamalek 17–42
Al Ahly – Veszprém 23–31
Burgan – Füchse Berlin 18–38

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.