Þrír leikir fóru fram í 6. umferð þýsku Bundesligunnar í handbolta í dag og komu Íslendingar við sögu í öllum þremur leikjunum. SC Magdeburg vann öruggan níu marka sigur á nýliðum Bietigheim, 33–24, á heimavelli. Magdeburg var fimm mörkum yfir í hálfleik, 16–11, og hélt örugglega á forskotinu eftir hlé. Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon skoruðu fjögur mörk hvor fyrir Magdeburg. Þeir voru því næst markahæstir í liðinu ásamt Oskar Vind Rasmussen og Albin Lagergren. Matthias Musche og Antonio Serradilla voru markahæstir með fimm mörk hvor. Magdeburg er með tíu stig eftir sex leiki og er í þriðja sæti deildarinnar. Mikil dramatík var í stórleik dagsins þegar THW Kiel og Flensburg gerðu 31–31 jafntefli. Kiel var fjórum mörkum yfir í hálfleik, 18–14, en Flensburg vann síðari hálfleikinn 17–13 og tryggði sér annað stigið. Elias Ellefsen á Skipagøtu skoraði eitt mark fyrir Kiel en Arnar Freyr Arnarsson komst ekki á blað hjá Flensburg. Arnar Freyr fékk tveggja mínútna brottvísun í síðari hálfleik. Domen Makuc var markahæstur Kiel með níu mörk en Simon Pytlick og Aymeric Minne skoruðu sjö mörk hvor fyrir Flensburg. Flensburg og Kiel eru áfram ósigruð og jöfn á toppi deildarinnar með ellefu stig hvort eftir sex leiki. Rhein-Neckar Löwen vann svo tveggja marka sigur á MT Melsungen, 30–28, í hörkuleik. Löwen tryggði sér þar með sinn þriðja sigur á tímabilinu. Reynir Þór Stefánsson skoraði fjögur mörk fyrir Melsungen en liðið þurfti að sætta sig við sitt annað tap í deildinni á tímabilinu. Melsungen er með sjö stig eftir sex leiki en Rhein-Neckar Löwen er komið með sex stig. Haukur Þrastarson var næst markahæstur í liði Rhein Neckar Löwen með sex mörk. Úrslit dagsins: THW Kiel – Flensburg 31–31
SC Magdeburg – Bietigheim 33–24
Rhein-Neckar Löwen – MT Melsungen 30–28

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.