Þrír leikir fóru fram í 6. umferð þýsku Bundesligunnar í handbolta í dag. Gummersbach, Hannover-Burgdorf og Hamburg fögnuðu öll sigri á heimavelli. Lærisveinar Guðjóns Vals Sigurðssonar í Gummersbach unnu sannfærandi átta marka sigur á Bergischer, 38–30, en Arnór Þór Gunnarsson stýrir Bergischer. Gestirnir byrjuðu betur og komust í 3–1 en Gummersbach tók fljótlega völdin og leiddi 21–14 í hálfleik. Bergischer náði aldrei að ógna forskotinu eftir hlé og Gummersbach vann að lokum örugglega. Teitur Örn Einarsson skoraði tvö mörk fyrir Gummersbach og Elliði Snær Viðarsson eitt. Nikola Roganovic var markahæstur liðsins með ellefu mörk og Alex Dujshebaev skoraði sjö. Garðar Ingi Sindrason skoraði einnig eitt mark fyrir Gummersbach og var það hans fyrsta mark í þýsku Bundesligunni. Garðar gekk nýverið til liðs við Gummersbach frá FH. Gummersbach er komið með sjö stig eftir sex leiki og situr í sjöunda sæti deildarinnar. Bergischer er hins vegar enn án stiga eftir sex umferðir og situr á botninum. Hannover-Burgdorf vann öruggan átta marka sigur á Göppingen, 36–28. Heimamenn leiddu 18–15 í hálfleik en gerðu endanlega út um leikinn með 5–0 kafla í síðari hálfleik þegar staðan fór úr 23–20 í 28–20. Justus Fischer var markahæstur Hannover með níu mörk en Rutger ten Velde skoraði sex fyrir Göppingen. Ýmir Örn Gíslason lék ekki með Göppingen í leiknum. Hannover er með níu stig eftir sex leiki og er í fjórða sæti deildarinnar. Hamburg vann síðan sinn fyrsta sigur á tímabilinu þegar liðið lagði HSG Wetzlar, 37–32. Lærisveinar Rúnars Sigtryggssonar í Wetzlar leiddu 17–16 í hálfleik og staðan var jöfn, 30–30, þegar tæpar sjö mínútur voru eftir. Hamburg reyndist hins vegar mun sterkara á lokakaflanum og tryggði sér bæði stigin. Niklas Theiß var langmarkahæstur hjá Wetzlar með ellefu mörk en Oliver Norlyk skoraði níu fyrir Hamburg. Wetzlar er því áfram án sigurs eftir fyrstu sex umferðirnar en liðið er með eitt stig. Hamburg er komið með þrjú stig. Úrslit dagsins: Hannover-Burgdorf – Göppingen 36–28
Gummersbach – Bergischer 38–30
Hamburg – HSG Wetzlar 37–32

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.